Rússland eina taplausa liðið á EM í körfu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. september 2011 13:30 Sergey Monoya og félagar hans í rússneska landsliðinu fagna í gær. Nordic Photos / AFP
Í gær kláraðist milliriðlakeppnin á EM í körfubolta sem nú fer fram í Litháen. Fjórðungsúrslitin hefjast á morgun en Finnar máttu bíta í það súra epli að falla úr leik á lokadegi milliriðlakeppninnar. Rússar unnu í gær ævintýralegan sigur á Makedónum, 63-61, með þriggja stiga flautukörfu í lok leiksins. Sergey Monoya, fyrirliði rússneska liðsins, skoraði körfuna mikilvægu en fram að því hafði makedónska liðið barist af miklum krafti. Bæði lið voru taplaus fyrir leikinn en sigurinn þýðir að Rússar unnu sinn milliriðil og fá því lakasta liðið sem komst áfram úr hinum milliriðlinum í fjórðungsúrslitunum. Makedónía endaði því í öðru sæti riðilsins en Grikkir, sem unnu öruggan sigur á Georgíu, urðu í þriðja sætinu. Þá mættust Slóvenía og Finnland í hreinum úrslitaleik um hvort liðið kæmist áfram í fjórðungsúrslitin og fóru leikar þannig að Slóvenar unnu að lokum sjö stiga sigur, 67-60. Finnar hafa átt frábært mót í Litháen og komið mörgum á óvart. En á endanum reyndust Slóvenar, sem hafa valdið vonbrigðum, einfaldlega of sterkir. Slóvenía var með forystuna allan leikinn en Finnar náðu mest að minnka muninn í sex stig í fjórða leikhluta. Nær komust þeir ekki. Á morgun hefjast svo fjórðungsúrslitin þegar tveir leikir fara fram. Nú tekur við einfalt útsláttarfyrirkomulag en úrslitaviðureignin fer svo fram á sunnudaginn kemur.Fjórðungsúrslitin:14. september: Kl. 15.00: Spánn - Slóvenía Kl. 18.00: Makedónía - Litháen15. september: Kl. 15.00: Frakkland - Grikkland Kl. 18.00: Rússland - Serbía
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira