Körfubolti

Helena stigahæst þegar Dobri Anjeli vann úrslitaleik æfingamótsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Nordic Photos/Getty
Helena Sverrisdóttir byrjaði vel með Dobri Anjeli Kosice liðinu en hún var í aðalhlutverki þegar liðið tryggði sér sigur á æfingamóti sem fór fram á heimavelli liðsins um helgina.

Helena skoraði meðal annars 21 stig í úrslitaleiknum þar sem að Kosice vann 71-59 sigur á ungverska liðinu Uniqua Sopron eftir að hafa verið 38-32 yfir í hálfleik. Bæði þessi lið munu taka þá í EuroLeague í vetur.

Næstar á eftir Helenu í stigaskori í úrslitaleiknum voru slóvakíski framherjinn Lucia Kupcíková með sextán stig og bandaríski framherjinn 16 Erin Marie Lawless með 9 stig.

Helena fékk meiri ábyrgð í sínum fyrstu leikjum með Dobri Anjeli Kosice liðinu þar sem að slóvakíski leikstjórnandinn Zuzanu Zirkovú meiddist illa strax í fyrsta leik liðsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×