Eiga Frakkar möguleika á að vinna fyrsta gullið sitt í körfunni? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. september 2011 10:00 Tony Parker og félagar fagna sigri. Mynd/AP
Franska landsliðið í körfubolta hélt sigurgöngu sinni áfram á EM í körfubolta á föstudaginn þegar liðið vann sex stiga sigur á heimamönnum í Litháen, 73-67. Frakkar hafa unnið alla sjö leiki sína í keppninni til þessa og gera frábæra hluti undir stjórn Vincent Collet. Frakkar hafa aldrei unnið gull á stórmóti og komust síðast í úrslitaleik á Evrópumóti árið 1949. Besti árangur Frakka á stórmótum undanfarin ár voru silfurverðlaun liðsins á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 en síðast unnu þeir verðlaun á Em þegar þeir tryggðu sér bronsið árið 2005. Nando de Colo, leikmaður Valencia á Spáni, var hetja Frakka á föstudaginn þegar hann skoraði 13 af 21 stigi sínu í lokaleikhlutanum. San Antonio Spurs valdi De Colo í nýliðavalinu 2009 en hann var einnig með 4 fráköst og 5 stolna bolta í leiknum. Joakim Noah, leikmaður Chicago Bulls, var með 9 stig og 13 fráköst í leiknum og Tony Parker, leikmaður San Antonio Spurs, skoraði 19 stig. Parker hefur verið besti leikmaður liðsins í keppninni en hann er með 22,1 stig og 4,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Það eru fleiri NBA-leikmenn í franska liðinu: Nicolas Batum, bakvörður Portland Trail Blazers, Boris Diaw, kraftframherji Charlotte Bobcats og Kevin Seraphin, miðherji Washington Wizards. Frakkar mæta Evrópumeisturum Spánverja í lokaleik milliriðilsins í dag og er það úrslitaleikur um sigur í riðlinum. Framundan eru síðan útsláttarkeppnin en átta liða úrslitin hefjast eftir helgi.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira