Körfubolti

Gasol-bræðurnir æfa með Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Marc og Pau Gasol í leik í NBA-deildinni.
Marc og Pau Gasol í leik í NBA-deildinni. Nordic Photos / Getty Images
Bræðurnir Pau og Marc Gasol munu æfa með körfuboltaliði Barcelona á meðan að verkbann leikmanna í NBA-deildinni stendur yfir.

Gasol-bræðurnir eru spænskir en Pau leikur með LA Lakers og Marc með Memphis Grizzlies.

Marc hóf æfingar í dag en Pau kemur á fimmtudaginn. Félagið segir að þeir bræður muni æfa með félaginu á meðan verkbannið stendur yfir.

„Það væri minn fyrsti kostur að spila með Barcelona í vetur ef tímabilinu í NBA-deildinni verður aflýst,“ sagði Pau Gasol í samtali við spænska fjölmiðla.

Þess má svo geta að í síðasta mánuði samdi Rudy Fernandez, framherji Dallas Mavericks, við Real Madrid og mun hann spila með liðinu þar til verkbanninu lýkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×