Körfubolti

Helena og félagar í beinni á FIBAtv.com á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.
Fyrsti heimaleikur Helenu Sverrisdóttur og félaga í Good Angels Kosice í Meistaradeildinni (Euroleague) á tímabilinu verður annað kvöld þegar liðið fær spænska liðið Rivas Ecopolis í heimsókn.

Good Angels hefur unnið fjóra yfirburðarsigra í deildinni í Slóvakíu en tapaði með sjö stigum á útivelli fyrir pólska liðin Wisla Can-Pack í fyrsta leik sínum í Meistaradeildinni.

Spænska liðið Rivas Ecopolis tapaði sínum fyrsta leik með fjórum stigum á móti króatíska liðinu Gospic.

Leikur Good Angels Kosice og Rivas Ecopolis verður sýndur í beinni útsendingu á FIBAtv.com í opinni dagskrá. Leikurinn hefst klukkan 17.00 á morgun.

Á vef FIBA.com er líka viðtal við Helenu þar sem hún tala um árin sín á Íslandi, hvernig það er að koma frá litlu landi, árin í háskólaboltanum og svo fyrstu kynni sín af atvinnumannaboltanum með liði sínu frá Slóvakíu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×