Körfubolti

Helena með tíu stig í 91 stigs sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í Good Angels Kosice þurftu ekki að hafa mikið fyrir sigri á SK Moris Cassovia Kosice í slóvakísku deildinni um helgina. Good Angels vann leikinn 120-29 eða með 91 stigs mun.

Helena kom inn af bekknum og skoraði tíu stig en stigahæst var Iveta Salkauske með 22 stig og Danielle McCray skoraði 20 stig. Good Angels var 57-10 yfir í hálfleik.

Helena var líka með 3 stoðsendingar og 3 stolna bolta á þeim 22 mínútum sem hún spilaði. Hún setti meðal annars niður 2 af 4 þriggja stiga skotum sínum.

Helena og félagar hafa þar með unnið fjóra fyrstu leiki sína í slóvakísku deildinni með miklum yfirburðum en framundan er heimaleikur á móti spænska liðinu Rivas Ecopolis í Meistaradeildinni á miðvikdaginn.

Deildarleikir Helenu með Good Angels til þessa:

Good Angels Kosice-Dannax Sport Kosice 103-25 (16 stig, 5 stoðsendingar)

SBK Samorín-Good Angels Kosice 39-80 (1 stig, 5 stoðsendingar, 3 stolnir)

Good Angels Košice-MBK Región Roznava 119-34 (17 stig, 5 stoðsendingar)

SK Moris Cassovia Kosice-Good Angels Kosice 29-120 (10 stig, 3 stoðsendingar, 3 stolnir)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×