Körfubolti

Ekkert gengur hjá Loga og félögum í Solna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson. Mynd/Anton
Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings þurftu að sætta sig við 87-95 tap á heimavelli á móti Borås Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Solna-liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð og alls 6 af 8 leikjum sínum á tímabilinu. Liðið er nú 9. sæti og kemst ekki í úrslitakeppnina með sama áframhaldi.

Logi var með 15 stig, 6 fráköst og 3 stoðsendingar á rúmum 33 mínútum en hann hitti úr 6 af 15 skotum sínum í kvöld.

Logi spilaði mest af leikmönnum Solna í kvöld og var einnig sá sem gaf flestar stoðsendingar hjá liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×