Fótbolti

AC Milan vill fá Drogba

Drogba gæti kvatt Chelsea í janúar.
Drogba gæti kvatt Chelsea í janúar.
Ítalska félagið AC Milan hefur lýst yfir áhuga á að fá framherjann Didier Drogba lánaðan frá Chelsea í janúar. Það eru framherjavandræði í Mílanó þar sem Antonio Cassano verður lengi frá eftir að hafa farið í hjartaaðgerð.

Adriano Galliani, varaforseti Milan, segist einnig hafa áhuga á Nicolas Anelka og Mario Balotelli en viðurkennir að Drogba sé fyrsti kostur félagsins.

"Ég hef verið ástfanginn af Drogba síðan hann var hjá Marseille," sagði Galliani.

Drogba hefur aðeins komið við sögu í sjö leikjum hjá Chelsea í vetur og skorað eitt mark.

Milan er þekkt fyrir að vilja fá leikmenn sem komnir eru af léttasta skeiði og hefur félaginu oftar en ekki tekist að mjólka ótrúlega mikið úr þessum mönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×