Körfubolti

Helena byrjaði inn á í 119. sinn og setti skólamet

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena með þjálfara sínum Jeff Mittie.
Helena með þjálfara sínum Jeff Mittie. Mynd/Heimasíða TCU
Helena Sverrisdóttir var með 11 stig og 6 stoðsendingar þegar TCU vann 65-54 sigur á Wyoming í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt. Helena setti nýtt skólamet í leiknum með því að vera í byrjunarliðinu í 119. sinn.

Helena tók bara sex skot í leiknum en hún hitti úr öllum sex vítum sínum og tapaði ekki einum einasta bolta. Helena var með tvö fráköst, einn stolinn bolta og skoraði einn þrist.

Helena bætti skólamet Sandoru Irvin frá 2001 til 2005 sem byrjaði inn á í 118 leikjum fyrir TCU og komst síðan að í WNBA-deildinni eftir að hún útskrifast úr skólanum.

Helena hefur byrjað inn á í öllum leikjum sínum með TCU nema þremur. Hún var ekki í byrjunarliðinu í tveimur leikjum á fyrsta ári sínu og kom síðan inn af bekknum í einum leik í fyrravetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×