Körfubolti

Ótrúleg mennsk troðsla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Ungur drengur gerði sér lítið fyrir og tróð bæði boltanum og sjálfum sér í gegnum körfuna þegar hann sýndi listir sínar í hálfleik á leik í NBA-deildinni fyrir stuttu.

Eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir ofan stekkur drengurinn af trampólíni að körfunni og treður boltanum með tilþrifum.

Hins vegar fylgir hann sjálfur með í gegnum körfuna, eins ótrúlegt og það er.

Nú er spurningin - ætlaði hann að gera þetta?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×