Körfubolti

Ellefti sigurinn í röð hjá Sundsvall

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson.

Það er ekkert lát á góðu gengi Íslendingaliðsins Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Liðið vann sinn ellefta leik í röð í kvöld.

Að þessu sinni vann Sundsvall nauman sigur á Loga Gunnarssyni og félögum í Solna Vikings, 75-76.

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 15 stig. Hlynur Bæringsson var með 10 stig, tók 16 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.

Logi fór mikinn í liði Solna og var stigahæstur með 17 stig og gaf þess utan 5 stoðsendingar.

Sundsvall er í öðru sæti deildarinnar en toppliðið vann einnig sinn leik í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×