Körfubolti

Sigurgangan heldur áfram hjá Helenu og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir skoraði 12 stig þegar TCU vann sinn áttunda sigur í röð í bandaríska háskólaboltanum í nótt. TCU vann þá 56-46 útisigur á Utah og hefur því unnið fyrstu sex leiki sína í Mountain West deildinni sem er nýtt skólamet.

TCU-liðið hefur unnið alla leiki sína frá því að liðið tapaði á móti Georgiu-skólanum tveimur dögum fyrir jól. Liðið hefur alls unnið 14 af 20 leikjum sínum á tímabilinu.

Helena lék í 36 mínútur í leiknum og var með 12 stig, 5 stoðsendingar, 3 fráköst og 2 stolna bolta. Hún hitti úr 3 af 11 skotum sínum utan af velli og setti niður 5 af 6 vítum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×