Tvö mörk frá Robinho í 4-0 sigri AC Milan á Parma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2011 23:00 Robinho fagnar öðru marka sinna. Mynd/AP
AC Milan hitaði upp fyrir leikinn á móti Tottenham í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar á þriðjudaginn með því að bursta Parma 4-0 í ítölsku A-deildinni í dag. Bæði toppliðin unnu sína leiki í dag því Napoli vann 2-0 útisigur á Roma. Brasilíumaðurinn Robinho skoraði tvö síðustu mörkin í leiknum en áður hafði Antonio Cassano opnað markareikning sinn fyrir félagið og Clarence Seedorf skorað eftir undirbúning Svíans Zlatans Ibrahimovic. „Við spiluðum vel og vissum að við þurftum að gera það í kvöld. Það var gott að komast aftur á sigurbraut fyrir Tottenham-leikinn því þar á ferðinni sterkt lið. Við erum fullir sjálfstraust og trúum því að við getum unnið hvaða lið sem er," sagði Robinho eftir leikinn. Antonio Cassano skoraði sitt fyrsta mark fyrir AC MIlan síðan að hann kom til liðsins frá Sampdoria í um áramótin en markið kom eftir laglega sókn og sendingu Gennaro Gattuso. Cassano lagði síðan upp bæði mörkin fyrir Robinho með þriggja mínútna millibili í síðari hálfleik en Brasilíumaðurinn hefur nú skorað 9 mörk í 22 deildarleikjum á þessu tímabili. AC Milan hefur nú leikið tíu leiki í röð án þess að tapa og er með þriggja stiga forskot á toppi ítölsku deildarinnar eftir að Napoli vann 2-0 útisigur á Roma í kvöld. Úrúgvæmaðurinn Edison Cavani skoraði bæði mörk Napoli og er kominn með 20 mörk í deildinni.
Ítalski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Sjá meira