Körfubolti

Hlynur og Jakob með tólf sigurleiki í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 22 stig í kvöld.
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 22 stig í kvöld. Mynd/Stefán
Sundsvall Dragons hélt áfram sigurgöngu sinni í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld með tólf stiga heimasigri á Helga Má Magnússyni og félögum í Uppsala Basket, 96-84. Sundsvall er nú búið að vinna tólf leiki í röð og er á toppi deildarinnar.

Sundsvall er búið að vinna alla 12 leiki sína síðan liðið tapaði á móti Södertälje Kings 12. nóvember en það var þá annað tap liðsins í röð.

Sigur Sundsvall í kvöld var nokkuð öruggur. Liðið var 22-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann, var með 7 stiga forskot í hálfleik, 44-37, og var síðan komið með þrettán stiga forskot fyrir lokaleikhlutann.

Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur hjá Sundsvall með 22 stig en auk þess gaf hann 4 stoðsendingar og stal 3 boltum. Hlynur Bæringsson var með 10 stig, 10 fráköst og 4 stoðsendingar. Þeir félagar hittu úr 11 af 20 skotum sínum þar af 5 af 9 skotum fyrir utan þriggja stiga línuna.

Helgi Már Magnússon var með 9 stig, 6 fráköst og 2 stolna bolta á 22 mínútum. Hann hitti úr 3 af 6 skotum sínum í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×