Andvíg staðgöngumæðrun 26. febrúar 2011 08:30
Miklu meiri og lengri umræðu er þörf áður en til greina kemur að heimila staðgöngumæðrun hér á landi. Þetta kemur fram í fjölda umsagna um þingsályktunartillögu um málið. Þá er það gagnrýnt að samkvæmt tillögunni eigi frumvarp til laga að vera tilbúið þann 31. mars. Það sé allt of stuttur tími. Í tillögunni er lagt til að skipaður verði starfshópur sem undirbúi frumvarp sem heimili staðgöngumæðrun. Þar er gert ráð fyrir að staðgöngumæðrun verði aðeins heimiluð í velgjörðarskyni og einnig að skylda verði að gert verði bindandi samkomulag milli verðandi foreldra og staðgöngumóður. Þannig á að tryggja að hvorki staðgöngumóðir né foreldrar geti hætt við samkomulagið. Þetta er meðal þess sem gagnrýnt er í umsögnum. Mannréttindaskrifstofa Íslands segir það ganga þvert á mannréttindasjónarmið að kona sé bundin af samningi sem sviptir hana rétti yfir líkama sínum. Siðfræðistofnun Háskóla Íslands segir að með þessu sé vikið frá því verklagi sem tíðkist í flestum löndum. Slíkur samningur beri merki viðskiptasamninga, en ekki úrlausna á sviði fjölskylduréttar og vegi að yfirráðum konu á meðgöngu yfir líkama sínum. Fimmtán aðilar hafa skilað inn umsögnum til heilbrigðisnefndar Alþingis um tillöguna og mæla aðeins tveir þeirra með því að tillagan verði samþykkt, Staðganga, stuðningsfélag staðgöngumæðrunar á Íslandi og Tilvera, samtök um ófrjósemi. - þeb
Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira