Gætu skýrt upphaf kristninnar 30. mars 2011 00:00 Forn kirkjustaður Þessi hellir í Jórdaníu er talinn vera elsta kirkja kristinna manna. Blýbækurnar fundust einnig í helli í Jórdaníu.nordicphotos/AFP
Merkur handritafundur, sem gæti varpað nýju ljósi á sögu frumkristninnar, er nú deiluefni Ísraela og Jórdana. Handritin fundust í helli í Jórdaníu, líklega á árunum 2005 til 2007. Ónafngreindur bedúíni er sagður hafa fundið þær, en annar bedúíni er sagður hafa flutt þær til Ísraels. Hann segir fundarstaðinn lengi hafa tilheyrt fjölskyldu sinni. BBC fullyrðir að Jórdanar vilji nú fá blýhandrit þessi aftur frá Ísrael. Handritin eru um það bil sjötíu talsins, en í hverri bók eru aðeins fimm til fimmtán blöð og þau eru ekki stærri en kreditkort. Blöðin eru steypt úr blýi og kopar og bundin saman með hringjum. Skýrt er frá þessu á vefsíðum breska útvarpsins BBC. Þar er vitnað í sérfræðinga sem segja þennan handritafund hugsanlega jafnast á við Dauðahafshandritin og geti því varpað nýju ljósi á upphaf kristinnar trúar. Bækurnar eru skrifaðar á fornhebresku og skreyttar ýmsum táknum, sem benda til tengsla við frumkristna söfnuði. Fyrstu rannsóknir benda til þess að blýplöturnar séu frá fyrstu öld okkar tímatals, en rannsóknir eiga eftir að leiða í ljós hvort þarna sé um síðari tíma verk og hugsanlega fölsun að ræða.- gb
Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira