Körfubolti

Logi skoraði tíu stig á síðustu fimm mínútunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson skoraði 19 stig í 82-75 sigri Solna Vikings í Íslendingaslagnum á móti Uppsala Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Helgi Már Magnússon skoraði 16 stig fyrir Uppsala.

Þetta var annar sigur Solna í röð og liðið jafnaði Uppsala-liðið að stigum í 5. til 6. sæti en Uppsala sem tapaði þarna sínum öðrum leik í röð á þrjá leiki inni á Solna.

Logi skoraði 10 af stigunum sínum á síðustu fimm mínútum leiksins þegar Solna breytti stöðunni úr 66-66 í 82-75. Logi var hitti úr 7 af 14 skotum sínum í leiknum og var einnig með 3 fráköst, 1 stoðsendingu og 1 stolinn bolta. Solna vann þær 29 mínútur sem Logi spilaði með þrettán stigum.

Helgi Már skoraði stigin sín á 28 mínútum en hann hitti úr af 6 af 7 skotum sínum og var auk þess með 6 fráköst og 1 stoðsendingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×