Sundsvall Dragons vann toppslaginn á móti LF Basket Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2011 20:07 Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons, lið þeirra Hlyns Bæringssonar og Jakobs Arnar Sigurðarsonar, vann mikilvægan 94-81 útisigur á LF Basket í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld. Þetta var þriðji sigur Sundsvall í röð og sá sextándi í síðustu sautján leikjum. Liðið er nú með fjögurra stiga forskot á LF Basket auk þess að eiga einn leik inni. Hlynur og Jakob skoruðu báðir tíu stig í leiknum, Hlynur var auk þess með 11 fráköst og 5 stoðsendingar en Jakob var líka með 5 fráköst og 4 stoðsendingar. Sundsvall-liðið byrjaði leikinn frábærlega og var 31-18 yfir eftir fyrsta leikhlutann en LF Basket var búið að minnka forskotið í níu stig fyrir hálfleik, 47-38. LF Basket vann fyrstu fimm mínútur síðari hálfleiksins 15-7 og náði að minnka muninn í 53-54. Hlynur skoraði þá stemmningskörfu og fékk víti að auki og Sundsvall skoraði á endanum átta stig í röð. Sundsvall var 67-61 yfir fyrir lokaleikhlutann en LF Basket náð að jafna leikinn í 71-71 þegar sjö mínútur voru eftir. Sundsvall vann hinsvegar lokamínúturnar 23-10 og tryggði sér sigurinn. Hlynur og Jakob voru allt í öllu þegar Sundsvall breytti stöðunni úr 71-71 í 90-74 á tæpum fjórum mínútum en þeir áttu saman fimm stoðsendingar (Jakob 3 og Hlynur 2) á þessum mikilvæga kafla.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira