Reyna að styrkja sambandið 20. janúar 2011 06:00 Fyrir utan Hvíta húsið í Washington beið hópur fólks með mótmælaborða og krafðist frelsunar Tíbets. nordocsphotos/afp
Hu Jintao, forseti Kína, snæddi kvöldverð með Barack Obama Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu á þriðjudagskvöld. Þeir ræddu síðan betur saman í gærmorgun og héldu blaðamannafund á eftir. Þar fengu tveir bandarískir fréttamenn og tveir kínverskir að bera fram eina spurningu hver. Loks snæddu þeir aftur kvöldverð í gær. Obama sagði vonir standa til að heimsóknin yrði til þess að styrkja tengsl ríkjanna, en lagði jafnframt áherslu á mikilvægi mannréttinda. Á ýmsu hefur gengið í samskiptum Kína og Bandaríkjanna þau tvö ár sem Obama hefur verið við völd. Margir Bandaríkjamenn kenna Kínverjum að hluta um atvinnuleysið sem Bandaríkin búa við núna. Þá hafa Kínverjar ekki tekið undir óskir Bandaríkjastjórnar um þátttöku í aðgerðum gegn hlýnun jarðar, né heldur hafa þeir orðið við óskum Bandaríkjamanna um að halda aftur af Norður-Kóreu. Bandaríkin hafa fyrir sitt leyti farið í taugarnar á Kínverjum fyrir að hafa selt vopn til Taívans og tekið á móti Dalaí Lama í Hvíta húsinu. Nú á að styrkja sambandið, meðal annars með samstarfi í kjarnorkumálum.- gb
Loftslagsmál Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira