Skoðun

Launaleynd er lúaleg

Svavar Knútur skrifar

Ofbeldi finnst í margs konar myndum og formum, sýnilegum og torsýnilegum. Það er margbreytilegt hugtak og opið til túlkunar. Yfirborðskenndar skilgreiningar á ofbeldi eru gjarnan á líkamlega sviðinu. Ef það er ekki marblettur, laus tönn, brákað bein eða glóðarauga, þá var það ekki ofbeldi. Þessa skilgreiningu vilja margir halda sig við sem þora ekki að horfast í augu við raunveruleikann, sem er að ofbeldi er ríkjandi samskiptaform á ótrúlega mörgum stöðum innan okkar samfélags.

Ofbeldi er afskaplega fjölbreytilegt. Það getur verið andlegt, félagslegt, kynferðislegt, kerfisbundið og samfélagslegt, jafnvel fjárhagslegt. En allt ofbeldi miðar að því að halda þolandanum niðri og upphefja gerandann á kostnað hans. Það á ekki síður við um kynbundið ofbeldi. Kynbundið ofbeldi, bæði kerfisbundið og persónulegt, miðar alltaf að því að halda niðri hinu kyninu. Vissulega getur kynbundið ofbeldi gengið í báðar áttir, en í þessum pistli vil ég beina sjónum mínum að ofbeldi sem mest snýr að konum.

Ofbeldi getur falist í sviptingu gæða eins og frelsis, matar, upplýsinga eða húsnæðis. Þannig geta fyrirtæki og stofnanir beitt fólk ofbeldi með því að halda frá því nauðsynlegum upplýsingum. Allt tal um frjálsan markað, markaðslausnir og frjálst val neytenda er algerlega innantómt ef gagnsæi nýtur ekki við í samfélagi og upplýsingar eru ekki uppi á borðinu. Til dæmis vinna mörg fyrirtæki hart að því að halda upplýsingum um starfsemi sína og vinnuhætti frá fólkinu í samfélaginu.

Launaleyndin margumtalaða er skýrt dæmi um kerfisbundið kynbundið ofbeldi, þar sem vinnuveitendur þykjast hafa „hagsmuni einstaklinga" að leiðarljósi. Engu að síður er launaleyndin eitt sterkasta vopnið í því að halda niðri réttindum kvenna og halda aftur af jafnrétti kynjanna. Hvernig er hægt að eiga í eðlilegri samkeppni við annað fólk ef allar nauðsynlegar upplýsingar um verðskuldun og vinnuframlag skortir?

Það er ekkert náttúrulögmál sem segir að laun skuli vera trúnaðarmál. Það er bara tæki til að hygla ákveðnum einstaklingum innan fyrirtækja og í raun eykur það enn frekar á tortryggni milli allra á vinnustað heldur en opinber og gegnsæ launastefna.

Rétt eins og það er engin afsökun fyrir þvermóðsku og heimóttarskap að

vera úr Mývatnssveit, þá er engin afsökun fyrir að líða eða ástunda ofbeldi, bara af því við erum mennsk.

 

 

 

 





Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is










Skoðun

Sjá meira


×