Körfubolti

Helena heiðruð af TCU

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU.
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir hefur verið útnefnd annar tveggja íþróttanámsmanna desembermánaða í háskóla hennar í Bandaríkjunum, TCU.

Helena útskrifaðist úr námi sínu í síðasta mánuði eftir aðeins þrjú og hálft ár í skólanum. Hún mun þó klára tímabilið með körfuboltaliði TCU sem er eitt hið sterkasta í Bandaríkjunum.

Sem stendur er Helena næststigahæsti leikmaður liðsins að meðaltali með 16,9 stig í leik. Hún er einnig næstfrákastahæst (6,9) en gefur flestar stoðsendingar og stelur boltanum oftast.

Deildakeppnin er nýbyrjuð hjá TCU sem leikur í Mountain West-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×