Körfubolti

Hlynur og Jakob sterkir í naumi tapi

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Hlynur var heitur í dag.
Hlynur var heitur í dag. Fréttablaðið
Sænska liðið Sundsvall Dragons, með þá Hlyn Bæringsson og Jakob Sigurðarson innanborðs, tapaði naumlega fyrir ríkjandi meisturum í Norrköpping Dolphins í stórskemmtilegum leik í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Sundsvall hafði unnið þrettán leiki í röð og var grátlega nálægt því að leggja meistarana. Sundsvall var 15 stigum undir fyrir síðasta leikhlutann en tókst með mikilli baráttu að jafna og komast fjórum stigum yfir.

Þeir misstu það forskot aftur á móti aftur niður undir lokin og lokatölur 99-98 fyrir Norrköpping.

Hlynur skoraði þrettán stig í leiknum og Jakob 11. Báðir voru þeir sterkir á lokakafla leiksins fyrir Drekana.

Viðtal við þá félaga birtist á Vísi innan skamms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×