Jón Arnór og Hlynur leika báðir sextugasta landsleikinn sinn í Serbíu í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. ágúst 2012 16:30 Jón Arnór Stefánsson hefur fengið að finna fyrir því í keppninni. Mynd/Valli
Jón Arnór Stefánsson og Hlynur Bæringsson munu báðir leika 60. A-landsleikinn sinn í kvöld þegar Ísland sækir Serbíu heim í undankeppni Evrópumótsins. Leikurinn fer fram í Cair Sports Center í Nis og hefst klukkan 18.30 að íslenskum tíma. Jón Arnór hefur skorað 772 stig í sínum 59 landsleikjum eða 13,1 stig að meðaltali í leik en Hlynur er með 612 stig í sínum 59 leikjum eða 10,4 stig að meðaltali í leik. Ísland hefur unnið 21 af leikjum Hlyns en 20 af leikjum Jóns Arnórs. Jón Arnór Stefánsson lék sinn fyrsta landsleik í Keflavík 1. ágúst 2000 en þetta var fyrsti leikur íslenska liðsins á Norðurlandamótinu 2000. Jón Arnór skoraði 9 stig í leiknum. Hlynur Bæringsson lék sinn fyrsta landsleik í Skopje í Makedóníu 23. febrúar 2000 í milliriðli Evrópukeppninnar en það var eini landsleikur hans til ársins 2003. Hlynur kom inn á í eina mínútu og tók eitt sóknafrákast. Hlynur og Jón Arnór hafa leikið 30 af þessum 59 leikjum saman en voru ekki saman í leik með landsliðinu fyrr en í leik á móti Danmörku í Árósum 10. september 2004. Jón Arnór skoraði 13 stig í þeim og Hlynur var með 10 stig en leikurinn tapaðist. Þeir voru í fyrsta sinn saman í sigurliði níu dögum síðar þegar íslenska liðið vann Rúmeníu í Keflavík.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Í beinni: KR - Grindavík | Bæði lið geta jafnað toppliðið að stigum Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Sjá meira