Skoraði 138 stig í nótt og setti NCAA-stigamet Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2012 15:00
Jack Taylor, leikmaður körfuboltaliðs Grinnell-háskólans, endurskrifaði körfuboltasöguna í nótt þegar hann skoraði 138 stig í 179-104 sigri á Faith Baptist Bible sjólanum í 2. deild bandaríska háskólaboltans. Enginn leikmaður hefur skorað fleiri stig í einum leik í sögu bandaríska háskólaboltans. Bevo Francis átti gamla stigametið sem var orðið meira en hálfrar aldrar gamalt en hann skoraði 113 stig fyrir Rio Grande í sigri á Hillsdale 1954. Jack Taylor hitti úr 52 af 108 skotum sínum í leiknum en þar af hitti hann úr 27 af 71 þriggja stiga skoti. Taylor spilaði í 36 mínútur í leiknum og skoraði því 3,8 stig að meðaltali á hverri mínútu sem hann var inn á vellinum. „Mér leið eins og öll skotin mín væru að fara í körfuna," sagði Jack Taylor eftir leikinn en það er þó ekki eins og að hann hætti að skjóta þegar hann hitti illa. Taylor nýtti aðeins 11 af 41 skoti í leiknum á undan. Taylor var kaldur í upphafi leiks en þjálfarar liðsins hvöttu hann til að halda áfram að skjóta. Hann var kominn með 58 stig í hálfleik og hitti síðan úr 32 af 58 skotum sínum í seinni hálfleiknum þar sem hann skoraði 18 þriggja stiga körfur. David Larson átti flottan leik hjá Faith Baptist skólanum en 70 stigin hans féllu algjörlega í skuggann á afrek Taylor. Jack Taylor hækkaði með þessari frammistöðu sinni meðalskor sitt á leiktíðinni frá 23,5 stigum upp í 61,7 stig að meðaltali í leik. Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum með því að smella hér fyrir ofan.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira