Körfubolti

Jón Arnór og félagar rétt töpuðu fyrir Murcia

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Valli
Murcia vann fínan sigur, 77-75, á CAI Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Jón Arnór Stefánsson, sem leikur með Zaragoza, náði sér ekki á strik í leiknum og skoraði tvö stig og tók fjögur fráköst.

Jafnræði var á með liðunum nánast allan leikinn og var gríðarlega spenna alveg fram á lokasekúndu leiksins.

Það voru heimamenn sem voru sterkari á lokasprettinum og unnu að lokum góðan sigur 77-75.

Zaragoza er í sjötta sæti deildarinnar en Murcia í þrettánda sætinu og því frábær sigur fyrir þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×