
Sýnum djörfung og dug
Góðir í skandölum – komast upp með þá.
Peningar gufa upp á milli staða sem enginn veit hvar eru – upphaf og endalok óskilgreind – ekki sakar að hafa heilaga jómfrú með í för – svo sem meistari Megas hefur reynt að kenna okkur.
Gæðingar fá gefins alls kyns dótarí – jarðir og uppsprettur, sveitarfélög og jafnvel sorpið sem hægt er að græða á – með því að gera ekkert við það. Þetta er allt einhvern veginn mjög heimilislegt.
Ítalir gætu jafnvel fengið lánaða forsetaræðuna góðu frá fundi í Sagnfræðingafélaginu í janúar 2006. Þar flutti forseti lýðveldisins lofgjörð um einstaka eðlisþætti Íslendingsins – eðlisþætti sem gera Íslendinginn að frumafli hins viti borna manns og útskýrir hvers vegna íslenskir athafnamenn bera sigurorð af öðrum. Ætti eiginlega að vera skyldulesning í skólum til varnar þeim hroka, siðblindu og sérgæsku sem einkennir ræðuna.
En, aftur að efninu, er fellur sem flís við rass Rómverja, kæmi ekki til söguleg sérviska.
Við mér blasir miðborg Rómar – besta byggingarsvæði borgarinnar – því vissulega væri hægt að byggja hér – en hvað sér auga mitt? Þið haldið mig skrökva þegar ég lýsi útsýninu – þannig að – fáið ykkur sæti ágætu lesendur svo þið komist heilir frá þessu – en sannleikurinn er sagna bestur. Það sem við blasir hér í þessari gömlu og að mörgu leyti virðulegu borg eru rústir – segi og skrifa RÚSTIR – sumt jafnvel svo gamalt dót að óvíst er um upprunann! Og ekki nóg með að þessum ósköpum sé haldið til haga heldur er þetta sýnt – jafnvel erlendum gestum!
Hér væri nær að nota hinn íslenska drifkraft – moka yfir dótið eins og gekk svo blessunarlega vel með gamla Víkurkirkjugarðinn og á nú að halda áfram með Ingólfstorg/Hallærisplan. Þannig mætti í Róm moka yfir Largo d"Argentina – þar sem Júlíus Cesar var drepinn um árið, henda Colosseum á haugana – eða alla vega draga það upp í Árbæ þeirra Rómverja og endurreisa þar rústirnar.
Hér í Róm skortir greinilega alla framtíðarsýn. Tillaga mín er einfaldlega sú, að íslenska þjóðin sýni nú loksins hvað í henni býr, fordæmið höfum við gefið jafnt og þétt með því að ryðja miðborg Reykjavíkur burt. Eðli málsins samkvæmt er embætti forseta Íslands hið eina sem væri þessum vanda vaxið – alvant þjóðarsefjun og aðstoð við íslenska ofurhuga.
Nú verði kýlt á alvöru útrás: Íslenskir hótelhugsjónamenn sameinist um það – undir leiðsögn forseta lýðveldisins – að drífa þetta af stað. Samhliða því að miðborg Reykjavíkur verði hótelvædd frá Aðalstræti 6 og upp úr hefjist endurreisn Rómaborgar!!
Skoðun

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar

Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar
Guðbjörg Pálsdóttir skrifar

Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk
Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar

Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni
Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga
Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar

Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Í lífshættu eftir ofbeldi
Jokka G Birnudóttir skrifar

Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við?
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra?
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni
Auður Kjartansdóttir skrifar

Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi
Ingvar Stefánsson skrifar

Raddir fanga
Helgi Gunnlaugsson skrifar

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Lífið sem var – á Gaza
Israa Saed,Katrín Harðardóttir skrifar

Vöxtur inn á við og blönduð borgarbyggð er málið
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skrifar

Tilskipanafyllerí Trumps
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Öfgar á Íslandi
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Borg þarf breidd, land þarf lausnir
Ásta Björg Björgvinsdóttir skrifar

Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum
Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar

Rjúfum þögnina og tölum um dauðann
Ingrid Kuhlman skrifar

Fátækt á Íslandi: Áskoranir, viðkvæmir hópar og leiðir til úrbóta
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Verndum vörumerki í tónlist
Eiríkur Sigurðsson skrifar

Hann valdi sér nafnið Leó
Bjarni Karlsson skrifar

Misskilin sjálfsmynd
Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Hvenær er nóg nóg?
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Byggðalína eða Borgarlína
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Úlfar sem forðast sól!
Jóna Guðbjörg Árnadóttir skrifar