Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar 8. september 2026 08:31 Ef allt fer á versta veg og dómadagsspámenn hafa rétt fyrir sér mun stór hluti mannkyns missa vinnuna vegna gervigreindar á næstu tveimur árum. Ef svo fer, hvað ætlum við þá til bragðs að taka og hvernig ætlum við að lifa af þegar kaupendur að vöru og þjónustu hverfa? Á meðan Íslendingar rífast um það hvort ESB sé gott eða vont rífst restin af hinum vestræna heimi um það hvort við munum yfir höfuð hafa vinnu eftir tvö ár eða ekki og hvort einstaklingar geti misst vinnuna vegna gervigreindar og síðan komist að því að lífeyrissparnaður þeirra hafi verið notaður til að fjármagna vélarnar sem tóku af þeim störfin. Í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er ekki gert ráð fyrir öðru en að ekkert muni breytast, heimurinn gangi sinn vanagang við að auka arð vopnaframleiðenda með þjóðarmorðum og kapítalisminn komi til með að sjá um bankana sína. Það er ástæða til að ætla að svo verði ekki ef stórmógúlum Ameríku verður ágengt með þá áætlun sína að gervigreindin taki yfir flestöll störf manna. Kapítalisminn þrífst á kaupæði og ef engin er kaupgetan, þá verður ekkert keypt. Þannig má segja að allir Muskar þessa heims séu á leið með að steypa sjálfum sér og okkur í glötun. Sterkar efasemdir eru um að Sykurbergum þessa heims takist þetta verkefni sitt. Fyrir þeim efasemdum eru verkfræðileg rök sem benda til þess að ekki sé fræðilegur möguleiki á að þetta takist vegna skorts á orku og vatni og þess tíma sem tekur að byggja upp nauðsynlega innviði. Nýjasta útspil NVIDIA sýnir að jafnvel mógúlarnir eru farnir að hafa áhyggjur af eigin hag. Fyrirtækið hefur nú tekið höndum saman við nokkur stærstu fjármálafyrirtæki heims um að sækja allt að 500 milljarða dala til utanaðkomandi fjárfesta svo hægt verði að halda áfram uppbyggingu gervigreindarinnviða. Með þessu á að gera reikniafl, gagnaver og NVIDIA-örflögur að sérstökum fjárfestingarflokki — eins konar nýju gulli sem hægt er að veðsetja, fjármagna og selja áfram til lífeyrissjóða, tryggingafélaga og annarra stofnanafjárfesta. Þannig er verið að sækja peninga almennings svo mógúlarnir geti haldið veislunni áfram og tékkað sig út áður en reikningurinn kemur. Að kaupa bíldekk sem fjárfestingu er galin hugmynd og því skil ég ekki hvernig hægt er að markaðssetja örflögur sem langtímafjárfestingu þegar fyrirtækið sem framleiðir þær kemur með nýja og bætta kynslóð á hverju ári og úreldir þannig þá fyrri. Vandinn er ekki aðeins að örflögurnar rýrna í verði heldur að verið er að tengja langtímasparnað almennings við búnað sem gæti orðið næstu kynslóð örflaga að bráð áður en lánstímanum lýkur. Mörg þeirra fyrirtækja sem þróa og reka stærstu gervigreindarlíkönin brenna gríðarlegum fjármunum þrátt fyrir þann mikla fjölda fólks sem hefur kosið að borga áskrift að útópíunni um auðveldara líf. Fyrirtækin fá ekki endalaust fjármagn og því er það þeirra keppikefli að innleiða notkun gervigreindar sem víðast og sem hraðast svo þau fari ekki hreinlega beint á gervigreindarhausinn. Fari svo að þessi fyrirtæki verði gjaldþrota, með tilheyrandi hliðarverkunum, er hætt við að áætlunin um hallalaus fjárlög, byggð á auknum sköttum á ökutæki og komu ferðamanna sem sulla í volgum drullupollum, falli um sjálfa sig. Þannig gæti núlláætlunin endað sem núlltekjuáætlun. Í hvoru dæminu sem er erum við í erfiðri stöðu. Ef Gervimennin ná sínu fram og taka yfir störf verður kaupgetan engin hjá þeim sem missa störfin. Ef vélarnar vinna alla vinnuna en eigendur vélanna fá allan arðinn, hver á þá að kaupa það sem vélarnar framleiða? Ef gervigreindarbólan springur og dregur fjármálakerfið og lífeyrissjóði niður með sér gæti eftirspurn eftir ferðalögum hrunið eins og önnur neysla. Ef heimurinn hrynur í líkingu við hrunið mikla, hvað verður þá um okkur hér uppi á skeri? Hvað ætlum við að gera þegar við getum ekki grætt á daginn og grillað á kvöldin? Covid hefði átt að kenna okkur allt um sjálfbærni, aðföng og innflutning og mikilvægi þess, en ég hef ekki heyrt einn einasta stjórnmálamann tala um sjálfbærni, nema frjáls sala áfengis teljist til sjálfbærni. Ísland framleiðir mikla orku og mat, en íslensk framleiðsla þarf samt meðal annars innflutt eldsneyti, áburð, fóður, lyf, umbúðir, varahluti, vélar og tölvubúnað. Gervigreindin er til margra hluta nytsamleg, en ef hún steypir okkur í glötun, hvað þá? Er Ísland sjálfbært? Getum við lifað af án nokkurra tengsla við umheiminn? Spurningin er ekki hvort Ísland geti lokað sig af frá umheiminum. Spurningin er hversu lengi við getum haldið samfélaginu gangandi ef skipin hætta að koma — og hvers vegna við vitum ekki svarið. Höfundur er ljósmyndari og áhugamaður um gervigreind. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun