Samsæriskenningar á kreiki um árásina í Sandy Hook 17. janúar 2013 12:22
Allt frá því að hinn tvítugi Adam Lanza gekk inn í Sandy Hook barnaskólann í Connecticut, þann 14. desember síðastliðinn og myrti þar 26 einstaklinga, hafa fjölmargar samsæriskenningar um skotárásina verið á kreiki. Kenningarnar eru af ýmsum toga. Þær taka meðal annars til föðurs ofbeldismannsins. Því hefur verið haldið fram að hann hafi átt að bera vitni vegna tengsla sinna við vaxtasvindl Barclays bankans, eða Libor-málsins, daginn eftir árásina. Þannig hafi voðaverkin verið truflun. Sú kenning sem vakið hefur hvað mesta athygli lýtur að Barack Obama, Bandaríkjaforseta, og að voðaverkin í Sandy Hook hafi aðeins verið liður í áætlun hans um að koma á hertari vopnalöggjöf í Bandaríkjunum. Svo virðist sem að samsærismenn séu almennt sammála um að skotárásin í Sandy Hook hafi ekki átt sér stað eða þá að hún hafi átt sér stað með allt öðrum hætti en helstu fjölmiðlar hafa greint frá. Sem fyrr hefur veraldarvefurinn reynst hentugur vettvangur til að ræða slíkar kenningar. Fjölmargir hafa ræða sín á milli um málið á spjallsvæðum á borð við Above Top Secret, Natural News og InfoWars. En kenningarsmiðir nýta sér nú myndbandavef YouTube í mun meira mæli en áður. Þannig hefur heimildarmyndin „The Sandy Hook Shooting - Fully Exposed" vakið gríðarlega athygli og hafa um átta milljón manns horft á myndbandið þegar þetta er skrifað. Hægt er að horfa á myndbandið hér fyrir ofan.
Skotárás í Sandy Hook-grunnskólanum Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán