Körfubolti

Pavel missti af öðrum leiknum í röð og Höfrungarnir úr leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pavel Ermolinskij
Pavel Ermolinskij Mynd/Anton
Pavel Ermolinskij kom ekkert inn á völlinn þegar Norrköping Dolphins tapaði með sex stigum á móti Tofas Sc Bursa, 70-76, í Eurochallenge Evrópukeppninni í Tyrklandi í kvöld.

Norrköping Dolphins varð að vinna leikinn til þess að eiga möguleika á að komast inn í átta liða úrslitin en nú er liðið úr leik fyrir lokaumferðina.

Höfrungarnir hafa aðeins unnið 1 af 5 leikjum sínum í riðlinum og sitja í botnsætinu. Eini sigurinn kom í heimaleiknum á móti Tofas Sc Bursa.

Pavel var á skýrslu eins og á móti Örebro um síðustu helgi en líkt og í þeim leik þá kom íslenski bakvörðurinn ekkert við sögu í Tyrklandi í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×