Jón Arnór: Náðum öllum okkar markmiðum Stefán Árni Pálsson skrifar 4. júní 2013 21:30 Jón Arnór í leiknum í kvöld. Hann gerði fimm stig fyrir Zaragoza. Mynd / karfan.is
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza hafa lokið keppni í spænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu en þeir töpuðu fyrir Real Madrid, 77-63, í þriðja leik liðanna í kvöld. Real Madrid vann því þrjá fyrstu leiki einvígisins og því komið áfram í úrslitaeinvígið. Heimamenn Zaragoza byrjuðu leikinn mjög vel og voru virkilega ákveðnir en í upphafi fjórða leikhlutans gerðu síðan þeir hvítklæddu út um leikinn og lauk honum með fínum sigri Real Madrid 77-63. Jón Arnór Stefánsson gerði fimm stig fyrir CAI Zaragoza í leiknum. „Við svona héldum í við þá fyrstu þrjá leikhlutana og vorum að spila vel,“ sagði Jón Arnór Stefánsson, leikmaður CAI Zaragoza, í samtali við Vísi í kvöld. „Maður hafði það samt í raun alltaf á tilfinningunni í seinni hálfleiknum að þeir myndu klára leikinn.“ „Heimvöllurinn hjálpaði okkur mikið í kvöld og þvílík læti í okkar áhorfendum allan leikinn. Það var löngu uppselt og frábært að spila í okkar höll.“ Real Madrid er stjörnuprýtt lið með valinn mann í hverju rúmi og leikmenn á heimsmælikvarða. „Þetta lið er með gríðarlega mikla breidd og hefur verið að vinna NBA-lið á þeirra undirbúningstímabili. Það mætti því alveg gera ráð fyrir að lið eins og Real Madrid myndi standa sig vel í NBA-deildinni.“ „Við erum gríðarlega stoltir af tímabilinu okkar en við náðum öllum okkar markmiðum. Liðið mun taka þátt í Evrópukeppninni á næsta tímabili, sem er brábær árangur.“ Jón Arnór á eitt ár eftir af samningi sínum við CAI Zaragoza og mun að öllum líkindum verð áfram hjá liðinu. „Ég á ár eftir af samningnum og verð áfram hjá liðinu, það eru spennandi tímar framundan hjá okkur.“
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira