Stelpurnar misstu naumlega af gullinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. júní 2013 13:39 Mynd/KKÍ
Ísland mátti þola svekkjandi tap gegn Lúxemborg í lokaleik liðsins í körfubolta kvenna á Smáþjóðaleikunum í dag. Stelpurnar verða því að sætta sig við silfur en heimamenn unnu þriggja stiga sigur, 62-59, eftir hnífjafnan og æsispennandi leik. Ísland fékk boltann þegar fimm sekúndur voru eftir og Helena Sverrisdóttir náði að koma sér í skotfæri utan þriggja stiga línunnar. En skot hennar geigaði. Ísland byrjaði mjög vel og var komið með tíu stiga forystu, 20-10, í fyrsta leikhluta. Eftir það dró saman með liðunum og staðan var jöfn að loknum fyrri hálfleik, 35-35. Leikurinn var í járnum í seinni hálfleik og liðin skiptust á að vera í forystu lokamínútur leiksins. Þegar þrjár mínútur voru eftir var Lúxemborg með tveggja stiga forystu, 57-55, og hélt í sókn. Heimamenn náðu að setja niður mikilvæga þriggja stiga körfu og komust því fimm stigum yfir. En íslensku stelpurnar létu ekki segjast og náðu að minnka muninn í eitt stig. En heimamenn voru grimmari í fráköstunum á lokamínútunni og komu sér í lykilstöðu með því að ná í tvö vítaskot þegar rúmar fimm sekúndur voru eftir. Tessy Hetting klikkaði hins vegar á báðum vítaskotunum, Ísland náði frákastinu og brunaði í sókn með fyrrgreindum afleiðingum. Helena, sem bætti stigamet íslenska liðsins í dag, skoraði sautján stig í dag og tók fimmtán fráköst. María Ben Erlingsdóttir skoraði tólf stig og Petrúnella Skúladóttir tíu.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira