Golf

Gullbjörninn segir boltann sökudólginn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jack Nicklaus og Arnold Palmer á góðri stundu.
Jack Nicklaus og Arnold Palmer á góðri stundu. Nordicphotos/AFP
Kylfingurinn Jack Nicklaus hefur kastað fram nýjustu kenningunni um ástæðu þess hve langan tíma taki að spila átján holur í dag.

Hægur leikur kylfinga sætir aukinni gagnrýni og fékk byr undir báða vængi á dögunum. Þá fengu undrabarnið Tianlang Guan og Hideki Masuyama víti fyrir hægan leik auk þess Golfsamband Bandaríkjanna hefur sagst ætla að beita sér gegn hægum leik.

„Það eru ekki bara kylfingar sem eru lengi að spila. Erfiðleikastig golfvallanna, lengd þeirra og vegalengdin sem boltinn flýgur," sagði Nicklaus á dögunum.

Nicklaus leggur sérstaka áherslu á hvernig nýir golfboltar hafa breytt íþróttinni. Þeir sé hægt að koma mun lengri vegalengd en áður fyrr.

„Aðalsökudólgurinn að mínu mati er golfboltinn og vegalengdin sem hann flýgur. Það tók þrjá til þrjá og hálfan tíma í gamla daga að spila hringinn. Á Opna breska spiluðum við hringinn á undir þremur tímum. Í dag tekur það næstum fimm klukkustundir.”

Nicklaus segir hægan leik gera almenningi erfiðara um vik að fylgjast með mótum og atvinnukylfingar verði verri fyrirmyndir.

„Ungt fólk vill leika eftir það sem atvinnukylfingarnir gera. Allt í einu tekur það krakka fimm og hálfan tíma að spila hringinn og þannig breytist íþróttin.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×