Golf

Systkini keppa í Einvíginu á Nesinu í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR keppir við bróður sinn í Einvíginu á Nesinu.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR keppir við bróður sinn í Einvíginu á Nesinu. Mynd/Daníel
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í sautjánda skipti á Nesvellinum á mánudaginn 5. ágúst næstkomandi.  Í ár mun DHL styrkja Dropann, styrktarfélag barna með sykursýki, um eina milljón króna.

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið  (shoot-out).  Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.

Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins boðið til leiks.  Í ár eru systkini á meðal þáttakenda en það eru þau Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sem er Íslandsmeistari kvenna í holukeppni og Alfreð Brynjar Kristinsson sem er klúbbmeistari GKG.

DHL hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag langveikra barna varða.  Í ár er það Dropinn – styrktarfélag barna með sykursýki, sem fær eina milljón króna frá DHL. Dropinn hefur verið starfræktur síðan 1995 og er markmið félagsins að stuðla að velferð barna og unglinga með sykursýki, m.a. með fræðslu, sumarbúðum og öðrum uppákomum.

Þátttakendur í Einvíginu á Nesinu 2013:

Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG - Klúbbmeistari GKG 2013

Birgir Björn Magnússon, GK - Klúbbmeistari GK 2013

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG - Íslandsmeistari í höggleik 2013

Björgvin Sigurbergsson, GK - Margfaldur Íslandsmeistari í höggleik

Hlynur Geir Hjartarson, GOS - Klúbbmeistari GOS 2013

Kristján Þór Einarsson, GKJ - Klúbbmeistari GKJ 2013

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR -  Íslandsmeistari kvenna í holukeppni 2013

Ólafur Björn Loftsson, NK - Klúbbmeistari Nesklúbbsins 2013

Þórður Rafn Gissurarson, GR - Shoot-out meistari 2012

Í höggleiknum um morguninn leika einnig tveir kylfingar um síðasta sætið í einvíginu.  Það eru sigurvegarar opinna móta á Nesvellinum fyrr í sumar og eru þeir:

Rúnar Geir Gunnarsson, NK - Sigurvegari Opna Þjóðhátíðardagsmótsins

Nökkvi Gunnarsson, NK - Sigurvegari Opna Úrval-Útsýn mótsins

Sigurvegarar frá upphafi

1997    Björgvin Þorsteinsson

1998    Ólöf María Jónsdóttir

1999    Vilhjálmur Ingibergsson

2000    Kristinn Árnason

2001    Björgvin Sigurbergsson

2002    Ólafur Már Sigurðsson

2003    Ragnhildur Sigurðardóttir

2004    Magnús Lárusson

2005    Magnús Lárusson

2006    Magnús Lárusson

2007    Sigurpáll Geir Sveinsson

2008    Heiðar Davíð Bragason

2009    Björgvin Sigurbergsson

2010    Birgir Leifur Hafþórsson

2011    Nökkvi Gunnarsson

2012    Þórður Rafn Gissurarson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×