Golf

Birgir Leifur og Valdís Þóra settu vallarmet

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar var sjóðheitur á Símamótinu sem fram fer á heimavelli hans, Leirdalsvelli.

Birgir Leifur lék annan hringinn á mótinu á 64 höggum, eða sjö höggum undir pari, og bætti vallarmetið um þrjú högg. Birgir Leifur fékk átta fugla og einn skolla á hringnum góða og tók þar með forystu á Símamótinu.

Birgir Leifur hefur tveggja högga forystu á Ólaf Björn Loftsson úr Nesklúbbnum sem enn á eftir að ljúka hringnum í dag. Stöðuna í karlaflokki má sjá hér.

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni var einnig í metagír í dag. Valdís Þóra setti vallarmet af bláum teigum þegar hún lauk keppni á 71 höggi eða pari vallarins.

Valdís Þóra Jónsdóttir.Mynd/Stefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×