Golf

Signý á þrjú högg á Karen

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Signý Arnórsdóttir.
Signý Arnórsdóttir. Mynd/GSÍmyndir.net
Signý Arnórsdóttir úr Golfklúbbnum Keili er í forystu í kvennaflokki eftir annan hringinn af þremur á Símamótinu. Leikið er á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

 

Signý lék í dag á 75 höggum og er á fimm höggum yfir pari eftir 36 holur. Í öðru sæti er Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja á átta höggum yfir pari.

Íslandsmeistarinn í höggleik, Sunna Víðisdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, er þriðja á 12 höggum yfir pari. Jafnar í fjórða til fimmta sæti á 13 höggum yfir pari eru þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili og Valdís Þóra Jónsdóttir Golfklúbbnum Leyni. Valdís lék hringinn í dag á  71 höggi eða á pari og bætti sig um heil  13 högg frá fyrsta hring.

Keppni í karlaflokki stendur yfir en þar hefur Birgir Leifur Hafþórsson forystu. Stöðuna í karla- og kvennaflokki má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×