Golf

Hafði betur gegn Tiger og Rose

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Adam Scott með verðlaun sín í gær.
Adam Scott með verðlaun sín í gær. Nordicphotos/Getty
Ástralinn Adam Scott vann sigur á Barclays-mótinu í New Jersey í gærkvöldi eftir mikla samkeppni frá köppum á borð við Tiger Woods og Justin Rose.

Um annan sigur Scott á PGA-mótaröðinni í ár er að ræða en hann tapaði ekki höggi á lokahringnum í gær. Hann lauk leik á 66 höggum eða fimm undir pari og samanlagt ellefu höggum undir pari.

Scott spilaði mjög stöðugt golf í gær og vann sig hægt og rólega í toppsætið á lokahringnum á meðan keppinautarnir töpuðu höggum.

Scott hefur unnið tíu sigra á PGA-mótaröðinni frá upphafi en hann vann sigur á Masters í vor. Scott situr í öðru sæti FedEx-stigalistans eftir sigurinn í gær.

Lokastöðuna í mótinu má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×