Golf

Tiger ánægður með árið hjá sér

AP/Getty
Tiger Woods ætlar sér stóra hluti á Tour Championship-mótinu sem hefst í dag. Takist honum að vinna mótið verður hann kylfingur ársins á PGA-mótaröðinni.

Þó svo Tiger hafi ekki unnið stórmót í fimm ár er hann búinn að vinna fimm mót á PGA-mótaröðinni á þessu tímabili. Hann hefur verið mjög stöðugur og er öruggur í efsta sæti heimslistans í golfi.

Mótið um helgina er síðasta mótið í FedEx-bikarnum þar sem gríðarlegir fjármunir eru í húfi.

"Ég er kominn á toppinn og þar vil ég vera. Það hefur verið mjög gott að vinna fimm mót í ár. Ég vil halda áfram á þessari braut. Það er mikið undir á þessu móti," sagði Tiger.

Aðrir sem eiga möguleika á að vinna titilinn Kylfingur ársins eru Phil Mickelson og Adam Scott en þeir hafa einnig leikið vel í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×