Golf

Piltalandsliðið tryggði sér sæti á Evrópumótinu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
MYND / KYLFINGUR.IS
Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari var mjög ánægður með frammistöðu piltanna okkar sem tóku þátt fyrir hönd Íslands í undankeppni Evrópumótsins sem lauk í Slóvakíu í gær.  

Piltarnir stóðu sig frábærlega og tryggðu Íslandi eitt af þremur lausum sætunum á Evrópumótinu pilta 18 ára og yngri sem fram fer í Noregi á næsta ári.

Landsliðsþjálfarainn var að vonum mjög kátur. „Maður getur ekki verið annað en ánægður og stoltur eftir þessa frammistöðu hjá strákunum. Markmiðið var að tryggja okkur eitt af þremur efstu sætunum og það tókst,“ sagði Úlfar Jónsson.

„Finnar sóttu verulega á undir lokin en strákarnir stóðust álagið og náðu að landa þriðja sætinu. Þessi keppni er alltaf að verða sterkari og sterkari. Það gerir þennan árangur enn ánægjulegri.

„Það hjálpaði okkur svo sannarlega framúrskarandi árangur hjá Gísla og Fannari Inga, að vera með tvö bestu skor einstaklinga, en liðsheildin var frábær og allir voru vel undirbúnir og einbeittir allan tímann.

„Við erum með ungt og sterkt lið, Það segir manni að framtíðin er björt í íslensku golfi. Það er líka sérlega ánægjulegt að karlaliðið náði fyrr í sumar að tryggja sér þátttökurétt á EM landsliða á næsta ári. Þannig að við munum leika á a.m.k. þremur Evrópumótum landsliða á næsta ári, þ.e. karla, kvenna og pilta. Þetta er frábær endir á góðu tímabili,“ sagði Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×