Norska knattspyrnusambandið hótar TV 2 lögsókn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2013 18:15 Ísland vann Noreg 2-0 í fyrri leiknum. Mynd/Vilhelm
Noregur og Ísland mætast í lokaleik sínum í undankeppni HM á Ullevaal-leikvanginum á þriðjudaginn kemur. Norska knattspyrnusambandið hefur brugðist hart við þeirri ákvörðun TV2 sjónvarpsstöðvarinnar að sýna leikinn á hliðarrás. Forráðamenn sambandsins hafa gengið svo langt að hóta sjónvarpstöðinni lögsókn. TV2 er að frumsýna nýjan skemmtiþátt hjá sér þetta kvöld og hefur þess vegna fært landsleik Noregs og Íslands yfir á Zebra-sjónvarpsstöðina. Norska landsliðið hefur ekki staðið sig sérstaklega vel í undankeppninni og áhuginn á liðinu er minni en áður. „Við höfum ekki breytt neinu í okkar dagskrá. Leikurinn verður sýndur á Zebra-stöðinni," sagði Björn Taalesen, yfirmaður TV2 í samtali við vefsíðu norska ríkissjónvarpsins. „Við lítum á þetta sem brot á samningi ef að þeir ætla að sýna leikin á TV2 Zebra. Þeir geta ekki varið þessa ákvörðun sína með neinum alvöru rökum," sagði Svein Graff fjölmiðlafulltrúi norska sambandsins við Nrk.no. TV2 mun líklega ekki færa leikinn nema af vera skyldi að Norðmenn vinna leik sinn í Slóveníu á morgun. Þá ætti norska landsliðið aftur alvöru möguleika á að tryggja sér sæti umspilinu með sigri á Íslandi. Norska sambandið hefur þegar sett mikla pressu á forráðamenn TV2 og hóta þeim að fara með málið fyrir dómstóla.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Leik lokið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Körfubolti Fleiri fréttir Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Sjá meira