Golf

Birgir Leifur sem stendur í 40. sæti | Framhaldið óljóst

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd/Jón Björn
Birgir Leifur Hafþórsson hefur lokið leik öðru stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina á Tarragona á Spáni en fresta varð keppni í gær vegna veður þegar Birgir Leifur átti eina holu eftir á lokahringnum.

Birgir fór samtals þremur höggum undir pari í fjórum hringum á Spáni en það er enn ekki ljóst hvort Birgir Leifur komist á næsta stig mótsins en hann er sem stendur í 40. sæti og aðeins fara um tuttugu kylfingar áfram.

Enn eiga töluvert margir kylfingar eftir að ljúka lokahringnum og því er endanleg staða ekki orðin ljós en hér má fylgjast með gangi mála á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×