Golf

Valdís Þóra náði sér ekki á strik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/GVA
Valdís Þóra Jónsdóttir er á meðal neðstu keppenda á lokamóti úrtökumótaraðarinnar fyrir Evrópumótaröðina í golfi.

Valdís Þóra spilaði á 81 höggi í dag eða níu höggum yfir pari. Hún er á samtals ellefu höggum yfir pari eftir fyrstu tvo keppnisdagana og í 86.-88. sæti af 95 keppendum þegar þetta er skrifað.

Valdís Þóra hóf leik á 10. braut í dag og var á einu höggi undir pari eftir fyrstu fjórar holurnar. En hún fékk þrjá skolla og einn skramba á næstu fimm holum og náði sér aldrei á strik eftir það, ef frá er talinn fugl á 3. holu.

Hún spilaði á tveimur höggum yfir pari á fyrsta keppnisdeginum í gær og var um miðjan hóp að honum loknum.

Alls verða fimm hringir spilaðir en 60 efstu komast í gegnum niðurskurðinn sem verður framvæmdur eftir fjórða keppnisdaginn. Valdís Þóra á því enn möguleika á að koma sér aftur á beinu brautina.

30 efstu öðlast svo þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×