Golf

Ólafur Björn ætlar að vera sjóðandi heitur á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Björn Loftsson.
Ólafur Björn Loftsson. Mynd/GVA
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, komst í gegn niðurskurðinn á móti á NGA mótaröðinni í Orlando í dag en hann er í 16. sæti á þessu móti á vegum West Orange Country Club. Ólafur er átta höggum á eftir efsta manni fyrir lokahringinn en hann hefur leikið tvo fyrstu hringina á fjórum höggum undir pari.

Ólafur Björn lék annan hringinn á 70 höggum eða einu höggi undir pari. „Ég er býsna sáttur við mörg atriði í mínum leik en ég er enn aðeins að púsla hlutunum saman. Púttin og vippin voru flott í dag, púttstrokan er í góðu standi og mér líður vel yfir vippunum," skrifaði Ólafur Björn inn á Fésbókarsíðu sína í kvöld.

Ólafur Björn er bjartsýnn fyrir lokahringinn á morgun. „Lokahringurinn er á morgun, ég á rástíma kl. 7:45 en þá er spáð 6°C og með vindkælingu er það á við 2°C. Spurning um að taka teppið með út á völlinn í fyrramálið því ég ætla mér að verða sjóðandi heitur," skrifaði Ólafur Björn á fésbókarsíðu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×