Golf

Suður afrískir kylfingar í stuði í Katar

Arnar Björnsson skrifar
Suður Afríkumaðurinn George Coetzee hefur forystu á Katar-mótinu í golfi.  Hann lék á 8 höggum undir pari í morgun.  

Landi hans Dawie van der Walt og Englendingurinn Steve Webster koma næstir, höggi á eftir. Gamla kempan, Ernie Els, lauk leik í morgun þegar hann fékk örn á átjándu holunni.

Hann lék á 5 undir pari og er þremur höggum frá fyrsta sætinu. 

Bein útsending verður frá Katar á golfstöðinni á laugardags- og sunnudagsmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×