Golf

Watson og Yang deila forystunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
YE Yang byrjaði vel í Phoenix í gær.
YE Yang byrjaði vel í Phoenix í gær. Vísir/Getty
Bubba Watson og Suður-Kóreumaðurinn YE Yang eru efstir og jafnir eftir fyrsta keppnisdag Phoenix Open á PGA-mótaröðinni.

Báðir spiluðu á 64 höggum eða á sjö höggum undir pari. Watson fékk alls átta fugla og einn skolla en Yang sex fugla á seinni níu eftir rólega byrjun.

Sjö kylfingar koma næstir á sex höggum undir pari en hætta varð leik í gærkvöldi áður en allir náðu að klára fyrsta hringinn.

Phil Mickelson á titil að verja á mótinu en hann hefur verið að glíma við bakmeiðsli að undanförnu. Hann skilaði sér í hús á pari í gær.

Sýnt er beint frá mótinu á Golfstöðinni og hefst útsending frá öðrum keppnisdegi klukkan 18.00 í dag.


Tengdar fréttir

Mickelson magnaður í Abú Dabí

Phil Mickelson sýndi allar sínu bestu hliðar á Abú Dabí-meistaramótinu í golfi í morgun. Hann skilaði sér í hús á 63 höggum eða níu undir pari vallarins.

Garcia á meðal tíu efstu á ný

Spánverjinn Sergio Garcia er kominn aftur í hóp tíu efstu á heimslistanum í golfi eftir nokkurra ára fjarveru. Garcia hefur ekki verið hærra á listanum í fjögur ár.

Missir Mickelson af titilvörninni?

Phil Mickelson vonast til að geta tekið þátt í Phoenix Open mótinu á PGA-mótaröðinni um næstu helgi en þar á þessi bandaríski kylfingur titil að verja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×