Golf

McIlroy frábær í Dúbaí

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
McIlroy og Woods eftir hringinn í morgun.
McIlroy og Woods eftir hringinn í morgun. Vísir/Getty
Norður-Írinn Rory McIlroy virðist aftur kominn í sitt besta form en hann spilaði á níu höggum undir pari á fyrsta keppnisdegi Dubai Desert Classic-mótsins.

McIlroy spilaði á 63 höggum í morgun og fékk samtals sjö fugla og einn örn. Hann steig ekki feilspor í dag og varð Tiger Woods, sem var með honum í ráshóp, að sætta sig við að vera í skugga McIlroy í dag.

Woods spilaði þó ágætlega og var á fjórum höggum undir pari. Báðir eru þeir að taka þátt á sínu öðru móti í ár - McIlroy náði öðru sæti á móti í Abú Dabí fyrir tveimur vikum síðan en Woods komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Toorey Pines í Kaliforníu í síðustu viku.

Stephen Gallacher er ríkjandi meistari á mótinu í Dúbæ og var með þeim félögum í ráshóp. Hann spilaði á 66 höggum og var því fimm höggum undir pari.

Sýnt er beint frá mótinu á Golfstöðinni en útsending frá öðrum keppnisdegi mótsins hefst klukkan 09.30 í fyrramálið.




Tengdar fréttir

Er Tiger of mikið í ræktinni?

Fyrrverandi þjálfari kylfingsins Tiger Woods telur að efsti kylfingur heimslistans hafi bætt við sig of miklum vöðvamassa og að það sé að trufla frammistöðu hans á golfvellinum.

McIlroy í toppbaráttunni í Abu Dhabi

Norður-Írinn Rory McIlroy er á meðal efstu manna eftir annan keppnisdag á Abu Dhabi Championship mótinu sem fram fer á Evrópumótaröðinni í golfi.

Mickelson magnaður í Abú Dabí

Phil Mickelson sýndi allar sínu bestu hliðar á Abú Dabí-meistaramótinu í golfi í morgun. Hann skilaði sér í hús á 63 höggum eða níu undir pari vallarins.

Óþarfi að örvænta segir þjálfari Woods

Þjálfari Tiger Woods segir að það sé óþarfi fyrir aðdáendur hans að örvænta þrátt fyrir skelfilega byrjun á árinu. Woods féll úr leik á Farmers Insurance mótinu á PGA-mótaröðinni í gær.

Einvígi á milli Mickelson og McIlroy?

Mikil spenna er fyrir lokahringinn á Abu Dhabi Championship mótinu sem fram fer á Evrópumótaröðinni. Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson lék gríðarlega vel í dag eða á 63 höggum og er á meðal efstu manna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×