Körfubolti

Lamar Odom til Spánar - Mætir Jóni Arnóri í maí

Lamar Odom varð heimsmeistari með Bandaríkjunum árið 2010.
Lamar Odom varð heimsmeistari með Bandaríkjunum árið 2010. Vísir/EPA
Lamar Odom, tvöfaldur NBA-meistari með Los Angeles Lakers, er búinn að semja við spænskt úrvalsdeildarlið.

Þessi öflugi kraftframherji samdi við Laboral Kutxa út tímabilið en liðið er í borginni Vitoria-Gasteiz í Baskalandi. Liðið heitir reyndar Saski Baskonia en tók upp nafnið Laboral Kutxa vegna styrktarsamnings.

Odom hefur ekki spilað körfubolta síðan hann kláraði síðasta tímabil með Los Angeles Clippers en mikið hefur gengið á í lífi hans undanfarna mánuði.

Hann hefur glímt við meinta eiturlyfjafíkn og var handtekinn fyrir ölvunarakstur á síðasta ári. Odom fór í meðferð en yfirgaf meðferðarheimilið eftir einn dag þar inni.

DocRivers, þjálfari LA Clippers, bauð Odom til æfinga í nóvember á síðasta ári og virtist þá líklegt að hann myndi snúa aftur í NBA-deildina. Svo fór ekki og samdi Clippers frekar við þrjá eldri leikmenn: StephenJackson, HedoTurkoglu og SashaVujacic.

Odom vill komast úr sviðsljósinu í bili og er því, samkvæmt fréttum bandarískra miðla, ekki með klásúlu í samningi sínum sem gerir honum fært að yfirgefa Spán um leið og tilboð berst frá NBA-liði. Hann ætlar sér að spila með Laboral út tímabilið.

Þetta er augljóslega mikill hvalreki fyrir spænska liðið spili Odom nálægt sinni getu. Hann er eins og áður segir tvöfaldur NBA-meistari en hann var í sigurliði Lakers 2009 og 2010. Hann var valinn fjórði í nýliðavalinu 1999 og var kjörinn besti sjötti maður deildarinnar árið 2011.

Laboral Kutxa er í mikilli baráttu um að komast í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar en liðið er með níu sigra og tíu töp eins og fjögur önnur lið í 9. sæti deildarinnar.

JónArnórStefánsson fær væntanlega tækifæri til að mæta Lamar Odom í næstsíðustu umferð deildarinnar en Laboral vann fyrri viðureign liðanna, 92-83, á heimavelli sínum.

Lamar Odom boðinn velkominn á heimasíðu Laboral.Mynd/Skjáskot
NBA

Tengdar fréttir

Farinn í meðferð

Körfuboltamaðurinn Lamar Odom var tekinn fyrir ölvunarakstur fyrir suttu og er nú búinn að skrá sig í meðferð í Kaliforníu.

Ekki sést í þrjá daga

Körfuknattleiksmannsins Lamar Odoms er leitað af fjölskyldu sinni. Odom hefur ekki sést í þrjá daga en kappinn glímir við eiturlyfjavanda.

Odom rýfur þögnina

Það er illa komið fyrir körfuboltakappanum Lamar Odom. Hann hefur verið stjórnlaus síðustu vikur. Sagður vera þunglyndur og á kafi í vímuefnaneyslu.

Neitar fíkniefnavanda

Körfuboltamaðurinn Lamar Odom hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið. Hann er kvæntur raunveruleikastjörnunni Khloe Kardashian en hjónabandið ku standa á brauðfótum vegna vímuefnafíknar hans.

Los Angeles-liðin fylgjast með Odom

Lamar Odom virðist vera á ná tökum á lífi sínu á nýjan leik eftir skrautlega mánuði í viðjum vímuefna. Var meðal annars óttast um líf hans á tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×