Cleveland og Minnesota komast að samkomulagi um Love Kristinn Páll Teitsson skrifar 7. ágúst 2014 14:15 Kevin Love og LeBron James verða liðsfélagar á næsta tímabili. Vísir/Getty
Samkvæmt heimildum Yahoo Sports er stjörnuframherjinn Kevin Love á leiðinni til Cleveland Cavaliers eftir að félagið komst að samkomulagi við Minnesota Timberwolves um leikmannaskipti. Minnesota fær Andrew Wiggins, Anthony Bennett og fyrsta valrétt Cleveland í nýliðavalinu á næsta tímabili fyrir Love. Cleveland valdi Wiggins með fyrsta valrétt í nýliðavalinu í vor og Bennett með fyrsta valrétt fyrir ári síðan. Love sem er 25 ára hefur leiki með Minnesota allan sinn NBA-feril en félagið valdi hann með fimmta valrétt í nýliðavalinu árið 2008. Honum hefur hinsvegar aldrei tekist að koma félaginu í úrslitakeppnina í ógnarsterkri Vesturdeild. Love á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Minnesota og fór hann ekki leynt með að hann myndi ekki framlengja hjá félaginu. Love hefur hinsvegar komist að samkomulagi við Cleveland Cavaliers að hann skrifi undir nýjan samning er hann gengur til liðs við félagið. Það verður því ógnvægilegt þríeyki sem Cleveland mun tefla fram á næsta ári. Besti leikmaður deildarinnar, LeBron James, gekk til liðs við Cleveland í vor ásamt því að leikstjórnandinn Kyrie Irving skrifaði nýlega undir framlengingu á samningi sínum við Cleveland.
NBA Mest lesið Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Fótbolti „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Fótbolti Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Körfubolti Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Körfubolti Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Fótbolti Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Fótbolti Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Sport Fleiri fréttir Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Sjá meira