Sport

Nowitzki tók fram úr Olajuwon

Dirk fagnar áfanganum í nótt.
Dirk fagnar áfanganum í nótt. vísir/getty
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki kom sér þægilega fyrir í nótt í níunda sæti yfir stigahæstu leikmenn í sögu NBA. Hann tók þá fram úr Hakeem Olajuwon á listanum.

Þetta er stór áfangi í lífi Þjóðverjans sem man vel eftir því að hafa fylgst með Olajuwon er hann var unglingur í Þýskalandi.

„Það er algerlega ótrúlegt að hafa tekið fram úr Draumnum. Það var ekki hægt að verjast þeim manni á sínum tíma. Ég er mjög stoltur," sagði hinn 36 ára gamli Nowitzki sem er að spila sitt 17. tímabil í deildinni.

Hann er nú búinn að skora 26.953 stig á ferlinum eða sjö stigum meira en Olajuwon sem var auðvitað alltaf kallaður Draumurinn.

Úrslit:

Toronto-Orlando  104-100

Memphis-LA Lakers  107-102

Milwaukee-Oklahoma  85-78

Dallas-Sacramento  106-98

Portland-Charlotte  102-100

Golden State-San Antonio  100-113



Áfangarnir á ferli Dirk. Nowitzki tekur fram úr Olajuwon. Fyrsta rimma Dirk og Hakeem. Raptors gegn Magic.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×