Formaður HSÍ: Ánægjuleg niðurstaða og gríðarlega mikilvægt fyrir okkur

„Ég talaði við Arne Elovsson, varaforseta EHF, og þetta er niðurstaðan á fundinum. Ég skil ekkert í þeim af hverju þeir gefa ekki út fréttatilkynningu," sagði Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, í samtali við Vísi í kvöld en þá var IHF ekki ennþá búið að gefa út fréttatilkynningu. Hún kom síðan seinna.
„Þetta er búið að vera langur vegur en þetta er mjög ánægjuleg niðurstaða," sagði Guðmundur en trúði hann alltaf á það að Ísland fengi sætið á HM?
„Ég var orðinn mjög bjartsýnn þegar þessi lið drógu sig út útaf því að ég var búinn að fá stuðning frá Evrópusambandinu um það að við yrðum næsta þjóð inn. Síðan þegar þær óskuðu eftir að fá að fara inn aftur þá var ég ekki eins bjartsýnn," sagði Guðmundur.
Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmunum höfðu afsalað sér sætum sínum fyrr í þessum mánuði vegna pólískra ástæðna en þau vildu síðan bæði fá sætin aftur í þessari viku. IHF samþykkti það ekki og Ísland og Sádí-Arabía fengu sætin.
Ísland hóf málarekstur gegn IHF eftir að Þýskaland var tekið inn í sumar þegar Ástralir duttu út. Ísland átti að vera næsta varaþjóð en IHF breytti reglunum í miðri keppni.
„Við vorum ekki búnir að gefast upp í þessu dómsmáli og það var ennþá inni. Ég ætlaði að halda því áfram," sagði Guðmundur en hafði það eitthvað að segja um niðurstöðuna?
„Ég veit það ekki. Við vorum með beiðni á þessum fundi um að fá að fara með málið beint til Íþróttadómstólsins í Lausanne og sleppa þar með næsta dómstigi hjá IHF. Sú beiðni lá fyrir hjá okkur en hún hefur eflaust ekkert verið tekin fyrir fyrst að við vorum komnir inn. Það sýndi fullan hug okkar að við ætluðum að halda áfram með þetta mál. Það verða aðrir að svara fyrir það hvort að það hafi haft einhver áhrif," sagði Guðmundur en sætið á HM skiptir gríðarlega miklu máli fyrir íslenskan handbolta.
„Við erum í prófi annað hvert ár í þessum Evrópu- og heimsmeistarakeppnum. Þetta er spilað svo ört og það er rosalega mikilvægt að keppa meðal þeirra bestu því þá erum við í hærri styrkleikaflokki þegar er verið að draga í þessar undankeppnir. Þetta er því gríðarlega mikilvægt fyrir okkur," sagði Guðmundur en það verður rætt meira við Guðmund í Fréttablaðinu á morgun.
Tengdar fréttir

Formaður HSÍ um HM-sætið: Ég bara veit ekki hvað mun gerast
Alþjóðahandknattleikssambandið tekur endanlega ákvörðun í dag um hvaða þjóðir spila á HM í handbolta.

Ísland verður með á HM í Katar | Ísland og Sádí-Arabía fá lausu sætin
Íslenska handboltalandsliðið verður með á HM í handbolta í Katar í janúar eftir allt saman en þessi óvænta ákvörðun var tekin á fundi Framkvæmdastjórnar IHF í Þýskalandi í dag samkvæmt óstaðfestum heimildum íþróttadeildar 365 . Íslenska landsliðið fær sæti í C-riðli með Svíum og Frökkum.

Varaforseti EHF staðfestir fréttirnar: Ísland í riðli með Frökkum og Svíum
Íslenska handboltalandsliðið verður með á HM í handbolta í Katar í janúar en Arne Elovsson, varaforseti evrópska handboltasambandsins, EHF, staðfesti þetta í viðtali við Expressen í kvöld.

IHF staðfestir að Ísland verði á HM | Barein og SAF fengu stóra sekt
Alþjóðahandboltasambandið hefur nú loksins staðfest þær fréttir á heimasíðu sinni að Framkvæmdastjórn IHF hafi ákveðið að gefa Íslandi og Sadí Arabíu lausu sætin á heimsmeistaramótinu í Katar í byrjun næsta árs.