Ellefti sigur Golden State í röð | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. desember 2014 07:00 Andrew Bogut treður í leiknum í nótt. Vísir/AP
Fátt virðist geta stöðvað Golden State Warriors í NBA-deildinni þessa dagana en liðið vann í nótt sinn ellefta sigur í röð er liðið lagði New Orleans Pelicans að velli, 112-85. Fáir hafa spilað betur en Stephen Curry í deildinni í vetur en hann var með nítján stig og ellefu stoðsendingar í nótt. Klay Thompson bætti við 23 stigum. Golden State hefur unnið sextán af átján leikjum sínum til þessa á tímabilinu og er með besta árangur allra liða í deildinni. Ellefu leikja sigurganga liðsins er einnig félagsmetjöfnun. Anthony Davis var með 30 stig og fimmtán fráköst fyrir New Orleans í leiknum. Cleveland vann New York, 90-87, þar sem Kyrie Irving fór á kostum og skoraði 37 stig fyrir gestina, þar af körfu þegar tíu sekúndur voru eftir og gerði út um leikinn. LeBron James reyndist einnig drjúgur á lokasprettinum er hann skoraði fimm stig í röð. Hann var með alls nítján stig og tólf stoðsendingar. Carmelo Anthony átti hins vegar ekki góðan leik en hann nýtti aðeins fjögur af nítján skotum sínum í leiknum og klikkaði á þriggja stiga körfu á allra síðustu sekúndum leiksins. Portland vann Indiana, 88-82. LaMarcus Aldridge var með átján stig og þrettán fráköst en þetta var þriðji sigur Portland í röð. Rodney Stuckey skoraði sextán stig fyrir Indiana sem hefur nú tapað þremur í röð.Úrslit næturinnar: New York - Cleveland 87-90 Portland - Indiana 88-82 Golden State - New Orleans 112-85
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira